Við skoðum eignina og gerum ástandsmat ásamt kostnaðaráætlun. Við sjáum um gerð útboðsgagna og bjóðum út viðhaldsverk. Við tökum að okkur eftirlit með framkvæmdum.

Þjónusta

Er komið að viðhaldi hússins? Þá erum við hér fyrir ykkur húseigendur. Fyrsta skrefið er að hafa samband við okkur og í sameiningu finnum við út hvað þið viljið láta gera fyrir eignina ykkar. Næst skoðum við húsið og leggjum mat á hvað þurfi að gera til að koma eigninni í gott ástand. Út frá þeirri skoðun vinnum við ástandsskýrslu ásamt kostnaðarmati, sem er grundvöllur fyrir frekari ákvarðanatöku varðandi framkvæmdir. Ef þess er óskað getum við komið með tillögur um forgangsröðun viðgerða.

Ef ákveðið er að fara út í framkvæmdir þá tökum við að okkur gerð útboðsgagna og bjóðum verkið út. Einnig getum við leitað tilboða án útboðs. Við getum séð um að útbúa verksamning við þann verktaka sem kemur til með að vinna verkið. Einnig tökum við að okkur að sjá um eftirlit með framkvæmdunum. Eftirlitið felur í sér að fara á verkstað og fylgjast með að verkið sé unnið í samræmi við útboðsgögn, halda reglulega verkfundi á verktímanum ásamt því að yfirfara og samþykkja framvindu vegna reikninga.

search previous next tag category expand menu location phone mail time cart zoom edit close