Verkþjónustan var stofnuð árið 2019. Eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Ástgeir Kristjánsson, byggingariðnfræðingur og húsasmíðameistari. Ástgeir hefur starfað við byggingariðnað í yfir tuttugu ár og frá 2017 eingöngu við að þjónusta og aðstoða húsfélög við að meta viðhaldsþörf eigna, bjóða út verk og sjá um eftirlit með framkvæmdum.
